Nærri fjórðungur kosið í Reykjavík

Frá kjörstað í Kringlunni.
Frá kjörstað í Kringlunni. mbl.is/Ólafur Árdal

Kjörsókn í Reykjavík er mjög svipuð og í síðustu alþingiskosningum árið 2021, bæði í Reykjavík norður og suður.

Klukkan 14 höfðu 23,3 prósent kjósenda á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi norður greitt atkvæði, en á sama tíma árið 2021 höfðu 23,8 prósent kjósenda í kjördæminu greitt atkvæði.

Í Reykjavíkurkjördæmi suður höfðu 25,6 prósent greitt atkvæði samanborið við 25 prósent í kosningunum fyrir þremur árum.

Atkvæði greidd utan kjörfundar eru ekki inni í þessum tölum. Talning atkvæða hefst kl. 22 í Laugardalshöll og er öllum opin. Streymt verður frá talningunni á vef Reykjavíkurborgar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka