Samfylkingin leiðir enn í Norðausturkjördæmi þegar 5.000 atkvæði hafa verið talin, með 1.161 atkvæði.
Sjálfstæðisflokkurinn er þar á eftir með 809 atkvæði, Flokkur fólksins með 715, Miðflokkurinn 670, Framsóknarflokkurinn 638, Viðreisn 471, Vinstri grænir 200, Sósíalistaflokkurinn 129, Lýðræðisflokkurinn 34 og Píratar 88.
Eins og staðan er núna eftir fyrstu tölur í öðrum kjördæmum þá leiðir Sjálfstæðisflokkurinn í Suður- og Suðvesturkjördæmi.
Landsyfirlitið sem birtist nú byggir að hluta á niðurstöðum úr skoðanakönnunum, þar til komnar eru atkvæðatölur úr öllum kjördæmum. Eftir að fyrstu tölur eru komnar úr öllum kjördæmum byggir landsyfirlitið einungis á þeim tölum sem gefnar hafa verið upp af yfirkjörstjórnum.
Samkvæmt þessum öðrum tölum úr kjördæminu eru þetta þingmenn kjördæmisins:
Kjördæmakjörnir
· Logi Einarsson (S)
· Jens Garðar Helgason (D)
· Sigurjón Þórðarson (F)
· Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M)
· Ingibjörg Ólöf Isaksen (B)
· Eydís Ásbjörnsdóttir (S)
· Ingvar Þóroddsson (C)
· Njáll Trausti Friðbertsson (D)
· Sæunn Gísladóttir (S)
Uppbótar
· Þorgrímur Sigmundsson (M)