Tveir deila fyrsta vinningi Lottó og fá rúmar 17,4 milljónir hvor.
Annar miðanna var keyptur í Lottó appinu en hinn í Shellskálanum, Austurmörk í Hveragerði.
Þá deila fimm öðrum vinningi sín á milli og fær hver 137 þúsund krónur.
Enginn var með fyrsta vinning í Jóker útdrættinum en fjórir miðahafar voru með annan vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning.