„Það eru rosaleg tíðindi í þessum niðurstöðum, þetta er umpólun á flokkakerfinu,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, um alþingiskosningarnar sem voru haldnar í gær.
„Sjálfstæðisflokkurinn er kominn niður fyrir 20%. Það er svakaleg staða fyrir þann flokk. Hann hefur borið ægishjálm yfir íslensk stjórnmál og er þarna kominn undir Samfylkinguna og undir 20% markið. Framsókn geldur afhroð þó að þeir haldist inni. VG er horfið út af þingi. Þetta er ákveðinn jarðskjálfti í íslenskum stjórnmálum,“ greinir Eiríkur frá.
Hann segir stöðuna snúna varðandi stjórnarmyndun og telur tvær ríkisstjórnir virðast vera í boði miðað við tölurnar. Báðar þurfi þær að hafa Flokk fólksins innanborðs, sem myndi annað hvort semja í átt til vinstri eða hægri.
„Það er ekkert augljóst í þessu,“ segir Eiríkur, aðspurður.
Hvað kemur mest á óvart?
„Það kemur mér aðeins á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn falli svona lágt, ég átti von á því að hann myndi klóra sig aðeins betur upp. Þó svo að kannanir hafi verið að mæla þetta hafði maður þá tilfinningu. Það kemur mér líka aðeins á óvart hvað Samfylkingin reynist ætla að vera há og hversu mikill munur er á henni og Viðreisn,“ svarar hann.
„Síðan þetta afhroð Vinstri grænna þó að það hafi blasað við. Svo eru fleiri flokkar að kveðja, Píratar eru að fara af þingi. Það eru tveir flokkar að fara af þinginu, það er dálítið mikið,“ bætir Eiríkur við.
„Þetta eru mikil umskipti, þetta er nýr pólitískur veruleiki í landinu.“