„Píratar þurfa klárlega að fara í innri endurskoðun“

Lenya Rún Taha Karim var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Lenya Rún Taha Karim var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Lenya Rún Taha Karim, leiðtogi Pírata, segir niðurstöður alþingiskosninganna mikil vonbrigði. Næstu ár muni fara í uppbyggingu flokksins.

Lenya Rún var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður og hlaut ekki kjör á Alþingi, ekki frekar en nokkur annar frambjóðandi Pírata.

Í færslu á Facebook kveðst hún geta talið upp ýmis atriði um íslenska kosningakerfið sem séu ólýðræðisleg en að hún nenni einfaldlega ekki að fara út í þá sálma.

Langar að gera margt

„Það sem ég vil hins vegar segja er að Píratar þurfa klárlega að fara í innri endurskoðun og ákveða sína vegferð vandlega næstu 4 árin,“ segir Lenya en bætir við að enn eigi eftir að koma í ljós hvernig sú uppbygging fari fram eða hvort hún muni eiga hlut í henni.

„Ég er ekki búin að ákveða hvort ég ætli að taka þátt í þessari uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað í Pírötum vilji hann eiga möguleika á að ná brautargengi í næstu kosningum, eða hvort ég láti verða af þeirri furðulegu þörf á að fara í doktorsnám fyrir þrítugt, eða hvort ég snúi aftur til starfa sem lögfræðingur,“ skrifar Lenya.

„Mig langar að gera svo margt sjáið til, og ég er ennþá svo ung.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka