Snorri: „Ég er orðlaus“

Snorri og kona hans Nadine.
Snorri og kona hans Nadine. mbl.is/Inga

„Ég er orðlaus“, segir Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, í samtali við mbl.is.

Fyrstu tölur í Reykjavík suður voru kynntar fyrir skömmu. Miðað við þær er Miðflokkurinn með 10% fylgi sem tryggir Snorra sæti á Alþingi. 

Kosningavaka Miðflokksins. Snorri Másson og Jakob Frímann Magnússon.
Kosningavaka Miðflokksins. Snorri Másson og Jakob Frímann Magnússon. mbl.is/Arnþór

„Þetta sýnir það sem mig grunaði, og það sem ég hef verið að finna á mér, að við erum með ótrúlegan meðbyr í Reykjavík,“ segir Snorri og bætir við: 

„Við erum að fara á þing í Reykjavík fyrir Miðflokkinn. Þetta er þvílíkur heiður ef að þetta reynist rétt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert