Tuttugu og einn hefur aldrei setið áður á þingi

Nokkrir af nýliðunum á Alþingi, eða þau Grímur Grímsson, Halla …
Nokkrir af nýliðunum á Alþingi, eða þau Grímur Grímsson, Halla Hrund Logadóttir, Alma Möller, Ragnar Þór Ingólfsson, Ingibjörg Davíðsdóttir og Jón Pétur Zimsen. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Árni Sæberg/Kristinn Magnússon/Ágúst

Tuttugu og einn nýliði hlaut kjör á Alþingi í nýafstöðnum alþingiskosningum.

Þar er átt við fólk sem hefur ekki áður starfað sem þingmenn eða varaþingmenn.

Þegar hlutfall nýliða er reiknað út má sjá að þeir verða rúmlega 30% allra þingmanna á Alþingi á næsta kjörtímabili. 

Konur eru í minnihluta í hópi nýliðanna, eða fimm talsins, á meðan karlarnir eru fimmtán. 

Nýliðar úr röðum Samfylkingarinnar:

  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.
  • Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna.
  • Ása Berglind Hjálmarsdóttir, bæjarfulltrúi í Ölfusi og verkefnastjóri í Hörpu.
  • Alma Möller landlæknir.
  • Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri.
  • Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi og sérfræðingur hjá RANNÍS.
  • Arna Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og ritari Samfylkingarinnar.
  • Þórður Snær Júlíusson blaðamaður, sem ætlar að gefa sæti sitt eftir.

Nýliðar úr röðum Sjálfstæðisflokksins:

  • Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla.
  • Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri, fv. formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar og fv. formaður SFS.
  • Ólafur Adolfsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akranesi.
Þessir nýju stólar bíða nýkjörinna þingmanna við Austurvöll.
Þessir nýju stólar bíða nýkjörinna þingmanna við Austurvöll. mbl.is/Eyþór

Nýliðar úr röðum Viðreisnar:

  • Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn.
  • Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri menningar- og íþróttasviðs og fv. bæjarstjóri Akureyrar.
  • Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri.
  • Ingvar Þóroddsson, framhaldsskólakennari á Akureyri.

Nýliðar úr röðum Flokks fólksins:

  • Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
  • Sigurður Helgi Pálmason, safnvörður og þáttastjórnandi.

Nýliðar úr röðum Miðflokksins:

  • Snorri Másson blaðamaður.
  • Ingibjörg Davíðsdóttir, fyrrverandi sendiherra Íslands í Noregi.
  • Þorgrímur Sigmundsson.

Nýliðar úr röðum Framsóknarflokksins:

  • Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka