Icelandair tók í dag við sinni fyrstu Airbus farþegaþotu af gerðinni A321 LR. Fór athöfnin fram í Hamborg í Þýskalandi. Hefur vélin fengið einkennisstafina TF-IAA. Vélinni verður síðar gefið nafn.
„Þetta eru svo sannarlega spennandi og skemmtilegir tímar fyrir Icelandair, en ekki síður mikil tímamót, þetta er fyrsta Airbus-þota félagsins í 87 ára sögu þess,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, þegar Morgunblaðið náði tali af honum úti í Hamborg í dag.
Nánar verður fjallað um málið í Morgunblaðinu á morgun.