Ólafur E. Jóhannsson
Flokkur fólksins er stærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi, en hann hlaut 20% atkvæða og tvo menn kjörna á Alþingi. Næstur honum kom Sjálfstæðisflokkurinn með 19,6% atkvæða, en Samfylkingin er í þriðja sæti með 17,3%. Síðan koma Miðflokkurinn með 13,6%, Framsóknarflokkurinn með 12% og Viðreisn með 11,2%.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, oddviti Flokks fólksins, er því 1. þingmaður kjördæmisins, en hún er jafnframt orðin forseti Alþingis og verður það a.m.k. uns kosið verður upp á nýtt í þau embætti.
„Ég þakka þennan árangur fyrst og fremst því að við höfum verið dugleg og vinnusöm á kjörtímabilinu, breytum ekki um kúrs og stöndum með okkar kjarnamálum, sem eru húsnæðismálin, baráttan við vextina og að hjálpa þeim sem minnst mega sín,“ segir Ásthildur Lóa í samtali við Morgunblaðið.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.