Sigríður Júlía verður bæjarstjóri

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir. Ljósmynd/Ísafjarðarbær

Sigríður Júlía Brynleifsdóttir verður næsti bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún tekur við af Örnu Láru Jónsdóttur sem hefur verið í bæjarstjóri frá árinu 2022 en náði á laugardaginn kjöri á Alþingi.

Fram kemur í tilkynningu að Sigríður Júlía hafi setið í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þetta kjörtímabil og verið bæði forseti bæjarstjórnar og formaður skipulags- og mannvirkjanefndar.

Síðustu misseri hefur hún verið skólastjóri Lýðskólans á Flateyri en áður starfaði hún um árabil sem sviðsstjóri hjá Skógræktinni.

Sigríður Júlía er með meistaragráðu í skógfræði frá lífvísindaháskólann að Ási í Noregi og BS-gráðu í landnýtingu frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Sigríður Júlía býr á Suðureyri og er gift Steinþóri Bjarna Kristjánssyni. Hún á tvo syni og fjögur stjúpbörn.

Ráðning Sigríðar Júlíu verður tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi næstkomandi fimmtudag og mun hún hefja störf 7. janúar næstkomandi.

„Vestfjörðum og Ísafjarðabæ hefur gengið vel síðustu árin. Við höfum náð tökum á fjármálum bæjarins og sjáum fram á áframhaldandi uppbyggingu. Það kom okkur ekki á óvart að kjósendur vildu Örnu á þing og úr því að svo fór er gott að hafa Siggu sem getur stokkið til með skömmum fyrirvara og klárað kjörtímabil Í-listans. Hún er vel inni í öllum málum og frábær samstarfsfélagi,“ segir Gylfi Ólafsson, oddviti Í-listans, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert