Þungir dómar í Sólheimajökulsmáli

Jón Ingi Sveinsson hlaut sex ára dóm í málinu.
Jón Ingi Sveinsson hlaut sex ára dóm í málinu. mbl.is/Eyþór

Jón Ingi Sveinsson hlaut í dag sex ára dóm í Sólheimajökulsmálinu svokallaða. Tveir aðrir men hlutu fimm ára dóm fyrir þátt sinn í málinu og aðrir tveir fjögurra ára dóm. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, við mbl.is.

Samtals 18 manns voru ákærðir í málinu vegna innflutnings, vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna, en auk þess var horft til þess að um skipulagða glæpastarfsemi væri að ræða sem og peningaþvætti. Þrír játuðu brot sín að hluta og var mál þeirra klofið frá aðalmálinu.

Þegar mbl.is ræddi við Karl Inga hafði hann ekki séð dóminn, aðeins hlýtt á dómsuppkvaðninguna. Hann taldi þó að allir hinir ákærðu hefðu verið fundnir sekir í málinu.

Umfangsmikið og flókið

Málið er um­fangs­mikið og flókið. Lög­regla lagði hald á um sex kíló af fíkni­efn­um, hátt í 40 millj­ón­ir króna, pen­inga­taln­inga­vél­ar, auk veru­legs magns vopna, þ.á.m. hin ýmsu skot­vopn, sverð, fimm axir og fjölda stungu­vopna.

Ástæða þess að málið er kallað Sólheimajökulsmálið er að spjallhópur nokkurra þeirra sem dæmdir voru í málinu var kallaður Sólheimajökull.

Frá 28 ára upp í 71 árs

Sak­born­ing­arn­ir voru 18 tals­ins, 5 kon­ur og 13 karl­ar. Flest eru á fer­tugs- og fimm­tugs­aldri, en sá yngsti er 28 ára og sá elsti 71 árs. Á meðal þeirra voru ein­ar mægður og ein­ir feðgar.

For­saga máls­ins er sú að í júní á þessu ári fór fram um­fangs­mik­il lög­regluaðgerð vegna glæpa­hóps­ins sem grunaður er um inn­flutn­ing, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna.

Á þriðja tug manna var hand­tek­inn í þágu rann­sókn­ar­inn­ar og fram­kvæmd­ar voru rúm­lega þrjá­tíu leit­ir í um­dæm­inu.

Flest­ir sak­born­ing­anna voru hand­tekn­ir í aðgerðum lög­reglu um miðjan apríl, en þá stóð hóp­ur­inn fyr­ir komu tveggja manna sem fluttu fíkni­efni til lands­ins með skemmti­ferðaskipi.

Skipulögð brotastarfsemi

Níu sak­born­ing­anna voru ákærðir fyr­ir skipu­lagða brot­a­starf­semi og stór­fellt fíkni­efna­laga­brot með því að hafa á ár­inu 2023 til 11. apríl á þessu ári selt og dreift fíkni­efn­um hér á landi. Þau voru sögð hafa sam­mælst um til­tekna verka­skipt­ingu við geymslu, pökk­un, sölu og dreif­ingu efn­anna.

Þá voru sak­born­ing­ar máls­ins einnig grunaðir um vopna­laga­brot, pen­ingaþvætti og um­ferðarlaga­brot. Einn var grunaður um til­raun til mann­dráps, en fallið var frá þeirri ákæru.

Höfuðpaur­ar glæpa­hóps­ins voru tald­ir vera þeir Jón Ingi Sveins­son, 47 ára, og Pét­ur Þór Elías­son, 36 ára. Lög­regla taldi þá vera eig­end­ur fíkni­efn­anna. 

Í gæslu­v­arðhalds­úrsk­urði yfir Jóni Inga seg­ir að hann hafi rætt um starf­sem­ina „eins og hann væri að reka fyr­ir­tæki”.

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert