Tvær leiksýningar hlutu verðlaun ÖBÍ

Forseti Íslands afhenti Sigfúsi Sveinbirni Svanbergssyni og Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur …
Forseti Íslands afhenti Sigfúsi Sveinbirni Svanbergssyni og Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur verðlaunin fyrr í dag. Ljósmynd/Aðsend

ÖBÍ réttindasamtök veittu tveimur leikverkum hvatningarverðlaun fyrir árið 2024 á alþjóðadegi fatlaðs fólks. 

Fúsi, aldur og fyrri störf og Taktu flugið, beibí hlutu verðlaun ÖBÍ sem Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti fyrir hönd samtakanna á Grand Hótel fyrr í dag. 

Fjórar tilnefningar

Alls voru fjórar tilnefningar til verðlaunanna en ásamt verðlaunahöfum voru leikskólinn Múlaborg og Dagbjört Andrésdóttir tilnefnd fyrir störf í þágu málaflokksins.

Forseti Íslands sagði við tilefnið: „Eigum við ekki að vona að hver sem ríkisstjórnin verður eftir þessar kosningar, að þá verði það ríkisstjórn sem setji þau mál [málefni fatlaðs fólks] á dagskrá með enn sterkari hætti.“

Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, oftast kallaður Fúsi, veitti verðlaunum viðtöku en hann er annar höfunda leikverksins, Fúsi, aldur og fyrri störf, ásamt Agnari Jóni Egilssyni. Þá tók Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir á móti verðlaunum, en hún er höfundur Taktu flugið, beibí.

Í tilkynningu ÖBÍ segir eftirfarandi um þá sem hlutu tilnefningu: 

Dagbjört Andrésdóttir

Dagbjört Andrésdóttir hefur staðið fyrir umfangsmikilli vitundarvakningu um heilatengda sjónskerðingu. Hún er einn höfunda heimildarmyndarinnar Acting Normal with CVI, en myndin fjallar um lífshlaup hennar og er fyrsta heimildarmyndin sem gerð er um heilatengda sjónskerðingu í heiminum.

Dagbjört, sem fékk fyrst greiningu á heilatengdri sjónskerðingu þegar hún var 26 ára gömul, hefur samhliða útgáfu myndarinnar veitt fjölda viðtala um heilatengda sjónskerðingu og bæði aukið vitund um skerðinguna og barist fyrir réttindum.

Fúsi, aldur og fyrri störf

Leiksýningin Fúsi, aldur og fyrri störf, markar tímamót í íslensku atvinnuleikhúsi. Sýninguna skrifa frændurnir Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Agnar Jón Egilsson en verkið fjallar um ævi hins fyrrnefnda. Þetta er í fyrsta sinn sem leikskáld og leikari með þroskahömlun leikur og semur eigið verk í íslensku atvinnuleikhúsi.

Leikverkið hefur verið sýnt í Borgarleikhúsinu og víðar um land við mikla hrifningu áhorfenda og var tilnefnt til fjölda Grímuverðlauna árið 2024. Fúsi, aldur og fyrri störf, er sett upp í samstarfi við sviðslistaframleiðandann Monochrome og List án landamæra.

Múlaborg

Leikskólinn Múlaborg við Ármúla er leiðandi hvað varðar inngildingu í víðum skilningi. Skólastarfið er án aðgreiningar en þar eru bæði fötluð börn og starfsmenn og starfsfólk og börn af erlendum uppruna.

Með inngildingu í fyrirrúmi og aðgreiningarlausu skólastarfi hefur Múlaborg tryggt leikskólaumhverfi þar sem öll fá notið sín.

Taktu flugið, beibí

Taktu flugið, beibí er fyrsta leikverk sviðshöfundarins Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur sem sett er á svið í atvinnuleikhúsi. Kolbrún leikur sjálf í verkinu, sem sett var upp í Þjóðleikhúsinu, en það byggir á persónulegri reynslu og lífshlaupi höfundar.

Leikverkið Taktu flugið, beibí markar kaflaskil enda eykur það sýnileika og bætir birtingarmyndir fatlaðs fólks í íslensku atvinnuleikhúsi. Kolbrún Dögg hefur um áratugaskeið barist fyrir aðgengismálum og öðrum réttindamálum fatlaðs fólks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert