Húnaþing vestra og Dalabyggð í viðræðum

Staðarskáli er skammt frá mörkum Húnaþings vestra og Dala.
Staðarskáli er skammt frá mörkum Húnaþings vestra og Dala. mbl.is/Sigurður Bogi

Samtöl eru hafin um hugsanlega sameiningu Húnaþings vestra og Dalabyggðar. Mörk þessara sveitarfélaga liggja saman á Holtavörðuheiði og Laxárdalsheiði, þar sem Dalirnir tilheyra Vesturlandi en Húnaþing vestra Norðurlandi. Samanlagður íbúafjöldi sveitarfélaganna er um 1.900 manns.

„Nokkuð er síðan þreifingar um þetta hófust en nú verður málið tekið til umræðu á opnum fundi á vegum sveitarstjórnar í Félagsheimili Hvammstanga,“ segir Magnús Magnússon, oddviti Húnaþings vestra, í samtali við Morgunblaðið, en fundurinn verður haldinn í dag.

„Sveitarstjórnarmenn velta fyrir sér hvernig megi, með ráðum og dáð, efla byggð og atvinnu og treysta fjárhag sveitarfélaganna til lengri og skemmri tíma. Einnig er horft til þess að ná meiri slagkrafti í samgöngu- og innviðauppbyggingu.“

Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri í Dalabyggð, segir þreifingar vissulega hafa átt sér stað. „Ég tel þess virði að kanna mál án þess að stofnað sé til neinna skuldbindinga á þessu stigi,“ segir Bjarki.

Nánar í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert