Landskjörstjórn frestar úthlutun þingsæta

Úr þingsal.
Úr þingsal. mbl.is/Eyþór

Landskjörstjórn hefur frestað fundi um úthlutun þingsæta sem átti að halda á morgun.

Þetta er gert að beiðni yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi, að því er fram kemur í tilkynningu frá landskjörstjórn.

Segir þar enn fremur að landskjörstjórn muni taka ákvörðun um hvar og hvenær fundurinn verði haldinn eins fljótt og hægt er. Verður tilkynning þess efnis birt á vef landskjörstjórnar og á kosning.is.

Þá verður tilkynning jafnframt send til umboðsmanna þeirra stjórnmálasamtaka sem buðu fram við alþingiskosningar.

Höfðu ekki skýra heimild

Greint hefur verið frá því að umboðsmaður Framsóknarflokksins hafi lagt fram beiðni um endurtalningu í Suðvesturkjördæmi eftir kosningarnar á laugardag.

Formaður yfirkjörstjórnar kjördæmisins sagði í samtali við mbl.is að engin skýr heimild væri fyrir yfirkjörstjórnina í kosningalögum til þess að taka ákvörðun um endurtalningu.

Sagði hann einnig að kjörstjórnin hefði lokið sínum störfum og að landskjörstjórn myndi fara yfir ágreiningsatkvæði á úthlutunarfundinum sem átti að halda á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert