Breiðfylking samtaka, fyrirtækja og einstaklinga úr skapandi greinum, menningu og listum hvetur forystufólk stjórnmálaflokka sem nú hugar að myndun nýrrar ríkisstjórnar til að standa vörð um ráðuneyti menningarmála og festa það í sessi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum sem telur það hafa verið til góðs þegar ráðuneyti menningar var sett á laggirnar árið 2022.
„Þar hefur grettistaki verið lyft með skilvirkri stjórnsýslu, skýrri forgangsröðun og stefnumótun í þágu lista, menningar og skapandi greina. Byggja þarf á þeim góða grunni sem varð til í öflugu samtali og samráði við listgreinarnar,“ segir í tilkynningunni.
Undir þessa yfirlýsingu skrifa Bandalag íslenskra listamanna, Samtök skapandi greina, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Miðstöð íslenskra bókmennta, Sviðslistamiðstöð, Tónlistarmiðstöð, Kvikmyndamiðstöð, Myndlistarmiðstöð, Rannsóknarsetur skapandi greina, Félag íslenskra safna og safnmanna, Íslandsdeild ICOM.
„Tryggjum áfram öflugt, sjálfstætt menningarráðuneyti. Varðveitum þann árangur sem náðst hefur við að efla menningu og skapandi greinar, sem eru nú orðnar einn stærsti atvinnuvegurinn og sá sem er í hvað örustum vexti,“ segir í tilkynningunni.