Verðlaun veitt fyrir merkingar á mikilvægu verkefni

Listaháskólanemarnir Kolfinna Frigg Sigurðardóttir, Gunnar Karl Thoroddsen og John Berniel …
Listaháskólanemarnir Kolfinna Frigg Sigurðardóttir, Gunnar Karl Thoroddsen og John Berniel Gavilo Quirona. Ljósmynd/Aðsend

Gunnar Karl Thoroddsen, nemi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, hlaut í gær fyrstu verðlaun í samkeppni um hönnun á merkingum á yfirbyggðum vagni sem mun innihalda 10-12 íþróttahjólastóla sem munu fjölga verulega tækifærum barna með fötlun í íþróttum.

Þetta segir í tilkynningu frá Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ).

Kemur þar fram að hönnunarsamkeppnin hafi verið samstarfsverkefni á milli verkefnisins Allir með og Listaháskóla Íslands en Allir með er verkefni sem gengur út á að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn í íþróttum.

Að verkefninu standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, UMFÍ og Íþróttasamband fatlaðra og veitti Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með.

Auðveldara að bjóða upp á æfingar í boltagreinum

Verðlaunin voru veitt fyrir myndskreytingar á vagni sem mun flytja íþróttahjólastóla á milli staða og þar af leiðandi verður auðveldara að bjóða upp á æfingar í boltagreinum.

„Vagninn er nú hjá Marel en starfsfólk fyrirtækisins hefur hannað og er að smíða innviði hans, svo hægt verði að koma tólf sérstökum hjólastólum fyrir í vagninum með góðu móti. Eftir það verður hann merktur með nýju hönnuninni,“ segir í tilkynningunni.

Segir þar enn fremur að rúmlega þrjú þúsund börn, sautján ára og yngri, séu á Íslandi í dag en að einungis fjögur prósent þeirra séu í skipulögðu íþróttastarfi.

Því verði þjóðin að breyta og er það stefnan með Allir með verkefninu.

Fjárfest í tíu íþróttahjólastólum

Þá kemur fram að verkefnið sé margþætt og eins geta fatlanir verið margs konar, bæði líkamlegar sem og andlegar.

„Ekkert hefur t.d. verið í boði fyrir börn sem eru í hjólastól. Það geta verið margar ástæður fyrir því en stærsta hindrunin er hvað íþróttahjólastólar eru dýrir. Til þess að geta boðið upp á æfingar í boltagreinum eins og hjólastólakörfubolta eða hjólastólahandbolta þurfa að vera til 10-12 stólar á hverjum stað. Kostnaðurinn við stólana er það mikill að menn hafa ekki lagt út þann kostnað og því er ekkert í boði fyrir þennan hóp.

Til þess að leysa þetta hefur „verkefnið“ fjárfest í tíu íþróttahjólastólum sem hugmyndin er að hægt verði að flakka með á milli íþróttahúsa í yfirbyggðri kerru. Marel hefur aðstoðað okkur við að hanna kerruna þannig að hægt verður að keyra öllum stólunum inn í kerruna án þess að taka þá í sundur,“ segir í tilkynningunni.

Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, veitti verðlaunin. Hann má sjá …
Valdimar Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, veitti verðlaunin. Hann má sjá hér lengst til hægri. Ljósmynd/Aðsend

Hlaut 150.000 krónur fyrir fyrstu verðlaun

Eins og fyrr hefur komið fram hlaut Gunnar Karl Thoroddsen fyrstu verðlaun og mun hönnun hans prýða Allir með-vagninn. Hlaut Gunnar 150.000 krónur fyrir fyrstu verðlaun.

Í öðru sæti var tillaga Kolfinnu Frigg Sigurðardóttur sem hlaut 100.000 krónur og tillaga John Berniel Gavilo Quirona í þriðja sæti og hlaut hann 50.000 krónur.

Bæði eru þau einnig nemar í grafískri hönnun við Listaháskólann.

„Það er alltaf ótrúlega gaman að taka þátt í svona verkefni. Það er mjög mikilvægt og hvetjandi fyrir bæði unga hönnuði og alla að fá að vera með af því að það vantar svona vettvang. Það er líka svo gott að hvetja  skapandi ungt fólk til að nýta hæfileika sína og taka þátt í hönnunarkeppnum. Ég gerði það sjálf á grunnskólaaldri og það var ótrúlega gaman,“ er haft eftir Kolfinnu Frigg.

Fjárfest hefur verið í tíu íþróttahjólastólum sem hægt verður að …
Fjárfest hefur verið í tíu íþróttahjólastólum sem hægt verður að flakka með á milli íþróttahúsa í vagninum. Ljósmynd/Aðsend

Fer á fleygiferð um landið eftir áramót

„Vagninn með þessari hönnun mun fara á fleygiferð um landið eftir áramót og vekja mikla athygli. Hann á eftir að gleðja börnin sem munu nota hjólastólana en sýna á sama tíma að við þurfum að gera betur í þessum málaflokki,“ er haft eftir Valdimari Gunnarssyni, verkefnastjóra Allir með.

Dómnefnd skipuðu þau Hrefna Sigurðardóttir, lektor við hönnunardeild Listaháskóla Íslands, Frosti Gnarr, kynningarstjóri Listaháskóla Íslands, og Valdimar Smári Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert