Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins áttu fund þrjár saman fyrir hádegi í dag.
Þetta segir Ólafur Kjaran, aðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingarinnar, í samtali við mbl.is.
Í kjölfar þess fundar bættust við aðrir gestir og funda formennirnir nú sameiginlega í stærri hóp.
Formennirnir funduðu ekki í gær en þeir hittust aftur á móti á fundi heima hjá Ingu á laugardag og héldu þar viðræðunum áfram.
Uppfært 14.24
Upphaflega sagði að formennirnir væru nú að funda hver í sínu lagi. Hið rétta er að þeir eru að funda saman áfram en nú í stærri hóp.