Bilunin á Víkurstreng, sem olli rafmagnsleysi í Vík og Mýrdal um klukkan hálfþrjú í nótt, er líklega í strengnum þar sem hann er plægður undir Skógá. Ekki er talið líklegt að hægt sé að hefja viðgerðir á strengnum í dag og þykir ljóst að keyra þarf varaafl í nokkurn tíma í viðbót.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rarik.
Hluti Víkur og Mýrdals er enn án rafmagns.
Bilanaleit hófst snemma í morgun og eftir hádegi kom í ljóst að bilunin er líklegast staðsett á fyrrnefndum stað. Áin flæddi yfir bakka sína í vatnsveðri og leysingum í nótt og í henni er mjög mikið vatn.
„Ólíklegt þykir að vatnsborð árinnar lækki nægilega í dag til að hægt sé að hefja viðgerð. Þessi staðsetning er afar erfið og aðstæður hættulegar og mun það tefja viðgerð þar sem ekki þykir forsvaranlegt að senda framkvæmdaflokka til að lagfæra strenginn nærri ánni eða undir brúnni yfir hana,“ segir í tilkynningunni.
Allir verktakar Rarik og starfsmenn á svæðinu eru tilbúnir að mæta til viðgerðar um leið og færi gefst.
Rarik segir að von sé á öflugum varaaflsvélum til Víkur í kringum klukkan 15, en upphaflega var gert ráð fyrir þeim í hádeginu. Varaflsvél frá RARIK er einnig á leiðinni frá Stöðvarfirði.
„Minni varaaflsvél RARIK sem staðsett er í Vík er í gangi og svo vel vildi til að færanleg varaaflsvél okkar var þegar staðsett í bænum og hefur verið gangsett. Varatenging frá Klaustri var einnig virkjuð og hefur hún náð að halda rafmagni inni á hluta bæjarins,“ segir í tilkynningu.
Fleiri viðskiptavinir Rarik eru nú með rafmagn en í morgun en samt er enn hluti Víkur og Mýrdals án rafmagns.