Meirihluti íbúa í Ölfusi greiddi atkvæði gegn því að mölunarverksmiðja Heidelberg rísi við Keflavík í Þorlákshöfn. Atkvæðagreiðslu lauk í kvöld og niðurstaðan birt nú fyrir skömmu.
Niðurstaður talningar í íbúakosningu um aðal- og deiliskipulagstillögur verksmiðjunnar hafa verið birtar með tilkynningu á vefsíðu Ölfuss en atkvæðagreiðsla fór fram dagana 25. nóvember til 9. desember.
Kemur þar fram að 1.994 hafi verið á kjörskrá og að alls kusu 1.310, eða 65,7%.
Sögðu 374, eða 28,5%, já við tillögunum á meðan 924, eða 70,5%, sögðu nei.
Þá voru 12 auðir og ógildir seðlar, eða 1%
Hafa því aðal- og deiliskipulagstillögurnar vegna mölunarverksmiðjunnar verið felldar.