Nánast á áætlun þrátt fyrir sjö eldgos

Frá vinstri: Ásta Ósk Stefánsdóttir, staðarstjóri Ístaks, Sunna Björg Helgadóttir, …
Frá vinstri: Ásta Ósk Stefánsdóttir, staðarstjóri Ístaks, Sunna Björg Helgadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs, Rafn Magnús Jónsson, yfirverkefnisstjóri SVA7 og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri. Ljósmynd/Aron Ingi Gestsson

Framkvæmdir við stækkun og endurbætur jarðvarmaversins í Svartsengi hafa gengið vel og eru nánast á áætlun, þrátt fyrir að eldgos hafi brotist út sjö sinnum hinum megin við Sýlingarfellið og Þorbjörn frá því að fyrsta skóflustungan var tekin fyrir tveimur árum.

Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 12 milljarðar króna og er stefnt að gangsetningu virkjunarinnar síðla árs 2025.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.

Kemur í stað tveggja orkuvera

Nýja orkuverið mun leysa af hólmi tvö eldri orkuver en einnig er verið að vinna endurbætur á ýmsum búnaði sem lýtur að heitavatnsframleiðslu.

Stefnt er að því að með stækkuninni aukist raforkuframleiðslugetan í Svartsengi um allt að þriðjung en framleiðslugetan er í dag um 66 MW.

Sjöunda jarðvarmaverið

„Í daglegu tali gengur framkvæmdin undir nafninu Svartsengi 7 (SVA7) sem vísar til þess að hér er um að ræða sjöunda jarðvarmaverið sem reist er í Svartsengi en hið fyrsta var tekið í notkun árið 1976, tveimur árum eftir að Hitaveita Suðurnesja, forveri HS Orku, var stofnuð,“ segir í tilkynningunni.

HS Orka hélt morgunkaffi í vikunni og bauð öllum sem koma að verkinu.Flestir starfsmannanna eru á vegum aðalverktakanna Ístaks, Rafal og HD en fjöldi annarra verktaka og undirverktaka koma að málum.

Verkís hannar virkjunina, Lota fer með forritun á stjórnkerfi og Ellert Skúlason ehf sá um jarðvinnu. Fyrirtækin Dip Work, LBC, Stjörnublikk, Topplagnir, Ari Oddsson ehf og JRS koma einnig að þessari miklu framkvæmd. Sjö starfsmenn HS Orku vinna að staðaldri við utanumhald verksins en Strendingur fer með bygginga- og verkefnisstjórn mannvirkja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert