Safnskóli verður byggður í Laugardal

Safnskólinn verður í Laugardalnum og stefnt er á að hann …
Safnskólinn verður í Laugardalnum og stefnt er á að hann verði tekinn í notkun árið 2030. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í dag að halda áfram vinnu við þróun og byggingu safnskóla á unglingastigi í Laugardal sem stefnt er að verði tekinn í notkun árið 2030.

Þetta segir í tilkynningu frá skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar.

Segir þar enn fremur að áætlað sé að safnskólinn muni rísa á svokölluðum „þríhyrningi“ á milli Skautahallarinnar og félagsheimilis Þróttar og Ármanns. Þá var einnig ákveðið í dag að halda aldurshópum í Laugarhverfi saman eins og var óskað eftir í samráðsferli málsins.

Verður safnskólinn fyrir unglinga í 8.-10. bekk af skólasvæði Langholtsskóla, Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla.

Grunnskólarnir verði skólar fyrir yngri árganga

Þá er einnig gert ráð fyrir að unglingar sem búi á nærliggjandi uppbyggingarreitum, við Grensásveg, á Orkureinum og í Skeifunni, muni stunda nám í skólanum en það verður þó skoðað nánar í sambandi við þróun íbúafjölda á uppbyggingarsvæðunum.

„Grunnskólarnir þrír sem fyrir eru í hverfinu munu allir vera skólar fyrir yngri árganga: Langholtsskóli fyrir nemendur í 1.–7. bekk, Laugarnesskóli fyrir nemendur í 1.–4. bekk og Laugalækjarskóli fyrir nemendur í 5.–7. bekk.

Bekkjaskiptingin í Laugarnes- og Laugalækjarskóla er útkoma yfirferðar umsagna þar sem fram kom vilji til að halda aldurshópum í Laugarhverfi saman í stað þess að búa til tvo skóla fyrir börn í 1.-7. bekk,“ segir í tilkynningunni.

Setja upp tímabundið skólaþorp

Þá munu næstu skref lúta að því að koma upp tímabundnu skólaþorpi á syðsta hluta bílastæðisins við KSÍ sem er í undirbúningi og stefnt að því að fyrsti hluti verði tilbúinn haustið 2025.

Kemur fram að börn úr Laugarnesskóla munu fyrst um sinn stunda nám í skólaþorpinu svo hægt verði að fara í nauðsynlegar og umfangsmiklar framkvæmdir á skólabyggingum.

„Áætlanir gera ráð fyrir því að safnskólinn verði tekinn í notkun árið 2030 og skólastarf fram að því verði að mestu leyti með óbreyttu sniði. Nokkru áður en nýi skólinn opnar verður blásið til samráðs með starfsfólki um skólastarf í nýjum skóla og breytingar á skólastarfi skólanna þriggja.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert