BHM og BSRB taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands, ásamt öðrum stéttarfélögum innan þeirra vébanda, varðandi stéttarfélagið Virðingu. Forkastanlegt sé að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks í eiginhagsmunaskyni.
Það voru Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) sem stofnuðu stéttarfélagið fyrir starfsfólk sitt, en í yfirlýsingu BHM og BSRB kemur fram að slík ráðstöfun gangi gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði. Launafólkið sjálft eigi að stofna sín stéttarfélög.
Bent er á að þegar séu í gildi kjarasamningar um öll störf á veitingahúsum sem innihaldi ákvæði um kjör og réttindi sem hafa náðst með áratugalangri baráttu launafólks.
Ámælisvert sé að stéttarfélag fyrirtækja á veitingamarkaði skuli hafa samið slík réttindi burt með einu pennastriki til hagsbóta fyrir atvinnurekendur. Er meðal annars um að ræða verri launakjör, lakari orlofsrétt og uppsagnarrétt o.fl.
Félagsgjaldið sé sambærilegt við önnur stéttarfélög en félagsfólk virðist ekki ávinna sér sambærileg réttindi í sjúkrasjóði eða rétt til fræðslustyrkja eða annarra styrkja.
„Það er forkastanlegt að atvinnurekendur skuli grafa með þessum hætti undan réttindum launafólks í eiginhagsmunaskyni. Slíkt hefur ekki bara neikvæð áhrif á réttindi launafólks heldur rýrir einnig stöðu atvinnurekenda sem vilja standa heiðarlega að rekstri fyrirtækja sinna. Starfsfólk á veitingahúsum er að stórum hluta ungt fólk og fólk af erlendum uppruna, sem mikilvægt er að eigi málssvara í öflugu stéttarfélagi sem hefur burði til að standa vörð um réttindi þess,“ segir í yfirlýsingunni.