Alls sækjast átján manns eftir starfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar sem auglýst var í síðasta mánuði.
Fyrst sóttu 22 um starfið en fjórir drógu umsóknir sína til baka. Umsóknarfrestur var fyrst til 24. nóvember en ákvörðun var tekin um að framlengja frestinn til 8. desember.
Helgi Grímsson hefur gegnt starfi skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar en sinnir nú tímabundið umbótaverkefni tengdu menntun á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi fyrir mennta- og barnamálaráðuneyti og mun hefja störf hjá ráðuneytinu um áramótin.
Umsækjendur eru:
- Arndís Steinþórsdóttir skrifstofustjóri
- Atli Arason verkefnastjóri
- Fannar Karvel framkvæmdastjóri
- Fizra Sattar kennari
- Guðlaug Erla Gunnarsdóttir skólastjóri
- Guðrún Björk Freysteinsdóttir deildarstjóri og staðgengill fagstjóra
- Gunnar Þorri Þorleifsson kennari
- Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri
- Hjördís Kristinsdóttir framkvæmdastjóri
- Joshua Fadaely-Sidhu rannsakandi í íþróttafræði
- Jódís Skúladóttir fyrrverandi þingmaður
- Nichole Leigh Mosty sérfræðingur með áherslu á verkefnastjórnun
- Ólafía María Gunnarsdóttir deildarstjóri
- Rúnar Sigríksson skólastjóri
- Salvör Sigríður Jónsdóttir viðskiptalögfræðingur
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri
- Steinn Jóhannsson rektor
- Xheida Gjata félagsráðgjafi
Intellecta hefur umsjón með ráðningunni og hæfisnefnd hefur verið skipuð.