Arnarstofninn fer hægt vaxandi

90 arnaróðul eru núna í ábúð á vestanverðu landinu.
90 arnaróðul eru núna í ábúð á vestanverðu landinu. Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson

Afkoma arna á yfirstandandi ári var með svipuðu móti og árið á undan. Af þeim 68 pörum sem urpu á þessu ári komu 43 pör upp ungum, eða tæplega tvö af hverjum þremur pörum. Þetta kemur fram í frétt á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ).

„Á þessu ári urpu að minnsta kosti 68 arnarpör og 43 þeirra komu upp að minnsta kosti 55 ungum. Þar af var 51 ungi merktur. Þetta er sambærilegur árangur og árið 2023 þegar 43 pör komu upp 56 ungum. Árið 2022 var hins vegar með lakari árum í nýliðun. Arnarstofninn heldur áfram að vaxa hægt en stöðugt og nú eru um 90 arnaróðul í ábúð á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa norður í Húnaflóa,“ segir í umfjölluninni.

Fram kemur að dánarorsakir þeirra fugla sem hafa drepist eru af ólíkum toga, þar á meðal fuglaflensa, flug á raflínu, blýeitrun (eftir að hafa étið gæsarhræ) og drukknun.

Settir hafa verið GPS/GSM-leiðarritar á arnarunga á öllu varpsvæðinu á hverju sumri frá 2019 en tækin eru notuð til að skoða búsvæðanotkun og ferðir arna. Alls fengu 53 arnarungar slíka senda á árunum 2019-2023 og síðastliðið sumar bættust 19 ungar í hópinn. „Af þessum 72 fuglum eru 49 fuglar enn á lífi með virka senda; 35 fuglar frá fyrri árunum og 14 fuglar frá þessu ári.“

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert