„Skellur fyrir íþróttastarfsemina í Hafnarfirði“

Skessan, knatthús FH-inga í Hafnarfirði.
Skessan, knatthús FH-inga í Hafnarfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn frjálsíþróttadeildar FH harmar þá stöðu sem aðalstjórn félagsins er komin í hvað varðar fjárreiður og rekstur Skessunnar, knatthúss félagsins í Kaplakrika.

Þetta segir í yfirlýsingu frá frjálsíþróttadeild FH.

Greint hefur verið frá að endurskoðunarfyrirtækið Deloitte hafi farið yfir fram­kvæmd út­tekt­ar á meðferð fjár­muna FH á bygg­ing­ar­tíma Skess­unn­ar en í skýrslu Deloitte segir að ónákvæmi hafi gætt í bókhaldinu.

Hefur sinn rekstur réttum meginn við núllið

„Samkvæmt skýrslu sem Deloitte vann fyrir Hafnarfjarðarbæ er margt óljóst og umdeilanlegt hvað varðar bókhald og meðferð fjármuna svo vægt sé til orða tekið. Þær upplýsingar sem þar koma fram eru skellur fyrir íþróttastarfsemina í Hafnarfirði,“ segir í yfirlýsingu frjálsíþróttadeildarinnar.

„Það skal tekið fram að frjálsíþróttadeildin hefur aldrei fengið greiðslur frá Aðalstjórn FH vegna rekstrartaps enda hefur deildin kappkostað að hafa sinn rekstur réttum meginn við núllið í gegnum árin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert