Ekki gert ráð fyrir nýju ráðhúsi

Akranes.
Akranes. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Dregið verður verulega úr fjárfestingum og framkvæmdum á Akranesi á næsta ári en staðarmiðillinn Skagafréttir vekur athygli á þessu. Fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun Akraneskaupstaðar til næstu þriggja ára var samþykkt í bæjarstjórninni á dögunum.

Fram kemur hjá Skagafréttum að nettó fjárfestingar 2025 verði einn tíundi þess sem varið var til fjárfestinga árið 2024.

Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum í tengslum við nýtt ráðhús á tímabilinu sem um ræðir, 2025-2028. Til stendur að Mánabraut 20 verði endurbyggð en þar var skrifstofu­húsnæði Sementsverksmiðjunnar á árum áður. Akraneskaupstaður á nú bygginguna en hún var áður í sam­eigin­legri eigu sveitarfélagsins og ríkisins. Viljayfirlýsing um uppbyggingu við Mánabraut var undirrituð í sumar.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert