Hæstiréttur hafnar kröfu Þorsteins Más

Þorsteinn Már vildi fá dómkvaddan matsmann til þess að skoða, …
Þorsteinn Már vildi fá dómkvaddan matsmann til þess að skoða, rannsaka og lýsa efni þriggja harðra tölvudiska sem Seðlabankinn tók í húsleit. mbl.is/Hákon

Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Þorsteins Más Baldvinssonar um dómkvaðningu matsmanns í miskabótamáli gegn Seðlabanka Íslands.

Per­sónu­vernd úr­sk­urðað á síðasta ári að varðveisla Seðlabankans á per­sónu­upp­lýs­ing­um um Þor­stein hafi ekki sam­rýmst lög­um um per­sónu­vernd.

Um er að ræða gögn sem safnað var við hús­leit Seðlabank­ans hjá Sam­herja í mars 2012, þar sem Sam­herji var grunaður um brot á gjald­eyr­is­lög­um. Ekk­ert varð úr þeim mála­til­búnaði Seðlabank­ans.

Seðlabankinn vildi ekki greiða táknræna upphæð

Aðdragandi málsins er sá að við hús­leit­ina í mars 2012 lagði Seðlabank­inn hald á mikið magn af ra­f­ræn­um gögn­um, um sex þúsund gígabæt, sem geymd voru á þrem­ur hörðum disk­um.

Þau gögn voru enn í vörslu Seðlabank­ans vorið 2020, einu og hálfu ári eft­ir að mál­inu lauk, en Seðlabankinn afhenti héraðssaksóknara gögnin.

Þorsteinn höfðaði miskabótamál gegn Seðlabankanum þar sem Seðlabankinn hafnaði því að greiða Þor­steini tákn­ræna upp­hæð vegna brota bank­ans á per­sónu­vernd­ar­lög­um.

Vildi fá matsmann til að sanna að persónuupplýsingar væru á diskunum

Þorsteinn krafðist þess að fallist yrði á matsbeiðni sem hann hafði lagt fram í málinu og að dómkvaðning matsmanns næði fram að ganga.

Vildi hann fá dómkvaddan matsmann til þess að skoða, rannsaka og lýsa efni þriggja harðra tölvudiska og gefa skriflegt og rökstutt álit á fjórtán nánar tilgreindum atriðum.

Með þessu vildi hann sanna og lýsa þeirra staðreynd að á diskunum væru persónuupplýsingar um hann.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í dómssal við aðalmeðferð í …
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, í dómssal við aðalmeðferð í skaðabótamáli Samherja gegn Seðlabanka Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ekki nýtt sér öll úrræði sem honum standa til boða

Hæstiréttur segir í niðurstöðu sinni að Þorsteinn hafi ekki tilgreint nákvæmlega eða lagt fram gögn um sig sem hann telur vera að finna á hörðu diskunum.

Einnig segir Hæstiréttur að Þorsteinn hafi ekki reynt á að nýta sér þau úrræði sem hann hefur samkvæmt lögum til að beina kröfu að héraðssaksóknara um að embættið afhendi honum tölvudiskana eða staðfesti að nánar tilgreind gögn séu á þeim og láta þannig reyna á skyldu embættisins að þessu leyti.

Umbeðin matsgerð „bersýnilega tilgangslaus“

Þá segir Hæstiréttur að jafnvel þó að dómkvaddur matsmaður myndi finna meint persónugögn þá myndi það ekki jafngilda því að gögnin yrðu sjálfkrafa meðal gagna í málinu gegn Seðlabankanum.

Eftir sem áður væri það hlutverk dómara að meta hvort að gögnin innihéldu persónuupplýsingar.

„Slík skoðun og úrlausn dómara getur þó ekki komið til ef þau gögn sem um ræðir eru ekki hluti málsgagna en jafnframt fengi sóknaraðili [Seðlabankinn] þá ekki notið jafnræðis í málinu. Við þessar aðstæður er umbeðin matsgerð varnaraðila [Þorsteins] bersýnilega tilgangslaus til sönnunar á þeim atvikum sem hann byggir málatilbúnað sinn á,“ segir í niðurstöðu Hæstaréttar.

Þarf að greiða Seðlabankanum 800 þúsund krónur

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði Seðlabankanum í vil, Landsréttur úrskurðaði Þorsteini í vil en nú hefur Hæstiréttur kveðið upp dóm í málinu og hafnað kröfu Þorsteins.

Þá er honum gert að greiða Seðlabankanum 800.000 krónur í kærumálskostnað fyrir Landsrétti og Hæstarétti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert