Hlýddu á jólaguðspjallið í fjárhúsinu

Fjölskyldur komu saman á helgistund í fjárhúsi á sunnudag.
Fjölskyldur komu saman á helgistund í fjárhúsi á sunnudag. Ljósmynd/Reyðarfjarðarkirkja

Farin var óvenjuleg leið á Reyðarfirði á sunnudaginn þegar börn og aðstandendur þeirra fengu tækifæri til að hlýða á jólaguðspjallið í fjárhúsi.

„Við vorum með aðventustund í fjárhúsunum á bænum Sléttu á Reyðarfirði. Hugmyndin var sú að börnin fengju mögulega einhverja tilfinningu fyrir því hvernig hafi verið að fæðast í fjárhúsi og hvernig aðstæður hafi verið þar sem frelsarinn fæddist,“ segir Benjamín Hrafn Böðvarsson, sóknarprestur á Reyðarfirði, en hann segir að fjölskyldur víðar úr Fjarðabyggð hafi sótt aðventustundina.

Benjamín las upp jólaguðspjallið og fæðingarfrásögnina en einnig voru sungin jólalög.

„Það var mjög vel mætt og fólki fannst alveg frábært að hlýða í fjárhúsi á frásögnina af fæðingu í fjárhúsi. Ég tel það alltaf vera gott þegar við færum kirkjuna aðeins út fyrir kirkjudyrnar,“ segir Benjamín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert