Framlengja samning við rektor á Bifröst

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst.
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Stjórn háskólans á Bifröst hefur framlengt samninginn við Dr. Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor um fimm ár eða frá 1.ágúst 2025 til 2. júlí 2030.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá háskólanum en þar segir að skólinn hafi tekið miklum breytingum undir stjórn Margrétar. Þar beri hæst fjármál skólans sem er kominn í hóp fyrirmyndarfyrirtækja Creditinfo.

Aðrar stórar breytingar eru að ákveðið hefur verið að selja háskólasvæðið á Bifröst en náðst hafi samningar við Húsnæðis og mannvirkjastofnun um fasteignir á svæðinu.

„Ein mesta breytingin er án efa sú að háskólinn ákvað að þiggja fulla opinbera fjárveitingu þannig að ekki eru lengur greidd skólagjöld við háskólann. Nemendafjöldi hefur nærri því þrefaldast við þá breytingu,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Margét segist þakklát fyrir traustið sem stjórnin beri til hennar og hlakkar til að takast á við verkefni komandi ára með sínu frábæra starfsfólki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert