„Við erum enn að bíða eftir skipulagi á þessari lóð á Rangárflötum 6,“ segir Haraldur Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþings ytra, en á lóðinni sem er sunnan megin við Stracta-hótelið á Hellu er engu að síður risið fokhelt hús.
Hreiðar Hermannsson eigandi hótelsins hafði verið að byggja hús á eigin lóð en fór út fyrir lóðina sem hann hafði byggingarrétt á, yfir á lóð í eigu sveitarfélagsins.
Þegar hann er spurður hvort hægt sé að byrja að reisa hús án þess að skipulag fyrir lóðina sé samþykkt segir Haraldur Birgir svo ekki vera, en engar fundargerðir um skipulag eða byggingarleyfi þar að lútandi eru á vefsvæði sveitarfélagsins.
„Samkvæmt lögum má það ekki, en það er ekki þar með sagt að menn geri það ekki. Svo við urðum að bregðast við. Ég stöðvaði framkvæmdir á lóðinni á húsi sem hann hefur ekki leyfi fyrir. Í kjölfarið sækir hann um lóðina sem hann er kominn inn á og sveitarstjórnin úthlutar honum lóðinni með þeim skilyrðum að það skuli lagt fram skipulag og annað til að hægt sé að gefa út byggingarleyfi á grunni skipulags eins og lög gera ráð fyrir. Tímaramminn er löngu liðinn hvað mig varðar, því ég hef ekki fengið skipulagið í hendurnar og ekki gefið út byggingarleyfi.“
Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag.