Breytingar verða á hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons og kvölddagskrá Menningarnætur á næsta ári. Skemmtiskokk maraþonsins verður t.a.m. fært úr Þingholtunum í Gamla vesturbæinn og mun kvölddagskrá menningarnætur ljúka klukkustund fyrr.
Breytingarnar voru á meðal tillaga starfshóps sem var stofnaður til að endurskoða skipulag hátíðanna og voru samþykktar á fundi borgarráðs í dag.
Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Segir þar enn fremur að starfshópnum um endurskoðun á skipulagi Menningarnætur og Reykjavíkurmaraþons var falið að kanna hvort ástæða væri til að endurskoða fyrirkomulag hátíðarhalds í miðborg Reykjavíkur fyrsta laugardag eftir 18. ágúst, afmælisdag Reykjavíkurborgar.
Voru helstu verkefni hópsins að greina vinnu starfsfólks Reykjavíkurborgar og helstu samstarfsaðila í tengslum við viðburðahald á Menningarnótt og Reykjavíkurmaraþon og greina kosti og galla við að halda þessa stóru viðburði sama dag.
„Tillögur hópsins eru að líta annars vegar til næsta árs og í framhaldi að skoða viðburðahald í miðborginni til framtíðar, þar með talið Menningarnótt og Reykjavíkurmaraþon. Ekki eru lagðar til breytingar á dagsetningu hátíðanna,“ segir í tilkynningunni.
„Tillögur fyrir árið 2025:
• Að hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþonsins verði breytt. Endamarkið verði fært frá Lækjargötu yfir í Geirsgötu til að auðvelda flæði fólks um Lækjargötu og takmarka umferð þungavinnuvéla sem fylgja frágangi hlaupsins.
• Að skemmtiskokk verði fært úr Þingholtunum í Gamla vesturbæinn til að létta á flóknum götulokunum í Þingholtunum, þar sem einnig eru götulokanir vegna Menningarnæturdagskrár, og auka öryggi almennings og lágmarka óþægindi íbúa í tengslum við aðgengi.
• Að dagskrá Menningarnætur ljúki formlega klukkustund fyrr en áður. Tónleikar við Arnarhól skuli ljúka með flugeldasýningu kl. 22.00 í stað 23.00.
• Að í aðdraganda hátíðarhaldanna verði farið í herferð þar sem forvarnaskilaboðum verður komið vel á framfæri.
• Að lagt verði til aukið fjármagn til gæslu og í kynningar sem lið í forvarnarstarfi.“
Þá kemur fram að í framhaldi þessa verði lagt til að stofnaður verði starfshópur til að skoða framtíðarfyrirkomulag viðburða í miðborg Reykjavíkur með tilliti til öryggismála, borgarlínu og annarra skipulagsmála.
Lagðar verði skýrar línur um hvernig viðburðarhald færi fram í miðborginni og hvernig hægt væri að viðhalda áhugaverðu menningarlífi í borginni en á sama tíma gæta fyllsta öryggis íbúa og móta framtíðarsýn.
„Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og var fyrst haldin árið 1996. Hátíðin hefur frá upphafi skipað mikilvægan sess í viðburðahaldi borgarinnar þar sem listafólk, menningarstofnanir, íbúar og rekstraraðilar fá tækifæri til að bjóða til veislu í miðborginni. Hátíðin er fjölmennasta hátíð landsins og dagskráin byrjar á hádegi og stendur fram á kvöld.
Reykjavíkurmaraþonið er haldið sama dag og hefur þátttaka aukist ár frá ári. Þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoninu árið 1984, þegar það var haldið í fyrsta sinn, voru 214 en þetta ár voru þeir 14.646.“