Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út til Árbæjarskóla fyrr í kvöld eftir að reykskynjari í skólanum fór í gang.
Að sögn varðstjóra var engin hætta á ferðum og er nú annar bíllinn farinn af vettvangi.
Einn er þó eftir þar sem verið er að skoða hvað olli því að reykskynjarinn hafi farið í gang en að sögn varðstjóra mátti einnig finna skrýtna lykt á staðnum sem er til skoðunar.