Valkyrjurnar ávarpa fjölmiðla: Tíðinda að vænta

Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir munu ávarpa …
Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir munu ávarpa fjölmiðla á eftir. mbl.is/Eyþór

For­menn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Viðreisn­ar og Flokks fólks­ins munu ávarpa fjölmiðla klukkan 17.15 á stuttum blaðamannafundi á Alþingi. 

Að sögn aðstoðarmanna formannanna er tíðinda að vænta frá formönnunum um stjórnarmyndunarviðræðurnar sem hafa verið í gangi á milli flokkanna síðan 3. desember. 

Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland byrjuðu að funda klukkan 15.30 en greint hefur verið frá að unnið var áfram í dag að skrifa stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. 

Að sögn Ingileifar Friðriks­dótt­ur, aðstoðar­manns Þor­gerðar Katrín­ar, gekk sú vinna vel þegar mbl.is náði af henni tali fyrr í dag. 

Þá var mögulega einhverra tíðinda að vænta um hvenær stjórnarsáttmálinn yrði kynntur. 

Fréttin hefur uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert