Samskip kærir úrskurð héraðsdóms gegn Eimskip

Málinu var vísað frá fyrr í mánuðinum.
Málinu var vísað frá fyrr í mánuðinum. Ljósmynd/Samskip

Sam­skip hf. hef­ur kært úr­sk­urð Héraðsdóms Reykja­vík­ur til Lands­rétt­ar þar sem máli Sam­skipa gegn Eim­skipa­fé­lagi Íslands hf. og Vil­helmi Má Þor­steins­syni, for­stjóra Eim­skips, var vísað frá 11. des­em­ber síðastliðinn. 

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Eim­skip til Kaup­hall­ar­inn­ar.

Í frá­vís­unar­úrsk­urði Héraðsdóms Reykja­vík­ur seg­ir að kröf­ur Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins voru að viður­kennt yrði fyr­ir dómi að Eim­skip og Vil­helm bæru óskipta bóta­ábyrgð á tjóni Sam­skipa eft­ir að Eim­skip og sam­keppnis­eft­ir­litið gerðu með sér sátt þar sem Eim­skip gekkst við því að hafa átt í sam­ráði við Sam­skip á tíma­bil­inu 2008 til 2013. 

Þar seg­ir jafn­framt að Sam­skip hafi kraf­ist bóta­skyldu án fjár­hæðar „vegna meintra ólög­mætra og sak­næmra at­hafna í tengsl­um við sátt sem Eim­skip gerði við Sam­keppnis­eft­ir­litið 2021.“

Taldi Héraðsdóm­ur Sam­skip ekki hafa gert nægi­lega vel grein fyr­ir meintu tjóni sínu og að kröf­ur á hend­ur Vil­helm væru van­reifaðar. Sam­skip hafi ekki með full­nægj­andi hætti gert grein fyr­ir hvernig sú hátt­semi hans að und­ir­rita sátt­ina hafi farið gegn skyld­um hans eða umboði. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert