Alvarleg netárás á Wise

Ljósmynd/Colourbox

Þekktur alþjóðlegur netglæpahópur hefur gert netárás á hluta kerfa Wise og tekið afrit af gögnum. Árásin hefur þó ekki haft áhrif á rekstur eða þjónustu Wise. Ljóst er að um alvarlega árás er að ræða og eru viðbrögð Wise í samræmi við það.

Frá þessu greinir Wise í tilkynningu sem hefur verið send á fjölmiðla. 

Unnið að því að tryggja öryggi og draga úr árhrifum árásarinnar

Fram kemur að þegar fólk hafi orðið vart við árásina hafi öryggisáætlun verið virkjuð og hefur fyrirtækið unnið að því að tryggja öryggi og draga úr áhrifum árásarinnar í samræmi við hana. Tekið er fram að helstu sérfræðingar frá netöryggisfyrirtækinu Syndis hafi verið kallaðir til sem hafi aðstoðað við að afla upplýsinga um umfang árásarinnar, greina stöðu og tryggja varnir gegn frekari árásum.

Þá segir að Wise hafi þegar greint Persónuvernd frá árásinni í samræmi við reglur og unnið sé að því að upplýsa þá viðskiptavini sem málið snerti um atvikið. Þá sé athygli vakin á því að árásin snerti ekki rekstrarþjónustu Wise (áður Þekking). 

Sami hópur gert árás á önnur fyrirtæki og stjórnvöld

„Glæpahópurinn hefur að undanförnu gert árásir á stórfyrirtæki og stjórnvöld víða um heim og notar þær aðferðir sem erfiðast er að verjast, sem er að fara í gegnum einstaka notendur.

Wise er vottað samkvæmt alþjóðlegum öryggisstöðlum og vinnur að því að tryggja umhverfi sitt gegn frekari árásum. Wise mun hafa gagnsæi að leiðarljósi og er frekari upplýsinga að vænta um leið og þær liggja fyrir,“ segir í tlkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka