Ásmundur Einar Daðason, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, kveðst hættur í stjórnmálum í bili. Hann segir það hafa verið mikinn heiður að fá að vinna að málefnum barna undanfarin ár.
Ráðherrar fráfarandi ríkisstjórnar ræddu við fjölmiðla áður en ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan 15.
„Mér líst vel á arftaka minn þannig það liggur bara alveg ótrúlega vel á mér,“ segir Ásmundur en Ásthildur Lóa Þórsdóttir hjá Flokki fólksins verður mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur náði ekki kjöri á þing en hann kveðst þó spenntur fyrir komandi ári, þó það verði að koma í ljós hver ný verkefni verða.
„Ég tók ákvörðun um það að þegar ég komst ekki inn á þing að þá yrði mínum stjórnmálaferli lokið í bili. Ég ætla að fara gera aðra hluti, einhverja skemmtilega og spennandi hluti. En ég geri ekki ráð fyrir því að fara á Alþingi aftur í bráð,“ sagði Ásmundur.