„Ekkert tekið minna á heldur en hótanir Kourani“

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari. mbl.is/Kristinn Magnússon

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir að framganga Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkissaksóknara gagnvart sér hafi tekið álíka mikið á hann og fjölskyldu hans og að sitja undir hótunum frá glæpamanninum Muhamad Kourani.

Þetta segir Helgi í samtali við mbl.is en Sigríður sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem hún segir að hún muni ekki úthluta Helga verkefnum þar sem hún telur Helga ekki upp­fylla al­menn hæfis­skil­yrði til að gegna embætti vara­rík­is­sak­sókn­ara.

Málið á sinn aðdraganda en Sigríður áminnti Helga árið 2022 fyrir ummæli sem hann hafði látið falla. Þann 29. júlí í ár óskaði Sig­ríður eft­ir því við dóms­málaráðherra að Helgi yrði leyst­ur frá störf­um, þar sem hún teldi hann ekki hafa bætt ráð sitt. 

Segir Sigríði vera að segja að ákvörðun Guðrúnar hafi verið röng

„Hún er að reyna draga þessa ályktun sjálf á sömu forsendum og ráðherra fjallaði um í sumar og hafnaði því sama. [Ráðherra] taldi mig vera hæfan til að gegna þessu starfi og mér yrði ekki vikið úr starfi. Þannig hún er í rauninni bara að þverskallast við að sætta sig við ákvörðun ráðherra, þar sem hún er í raun að fullyrða að niðurstaða ráðherra sé röng,“ segir Helgi en í sumar óskaði Sigríður eft­ir því að dóms­málaráðherra myndi leysa Helga tíma­bundið frá störf­um.

Guðrún Haf­steins­dótt­ir, þáver­andi dóms­málaráðherra, hafnaði beiðninni.

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari.
Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynningin kemur í kjölfar þess að nýr ráðherra tekur við

Til­kynn­ing­ Sigríðar kem­ur sama dag og Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir dóms­málaráðherra tek­ur við lykl­un­um að ráðuneyt­inu.

Heldurðu að hún sé að koma með þessa tilkynningu núna í þeirri von um að nýr ráðherra komist að annarri niðurstöðu en fyrri ráðherra?

„Ég skal ekki segja, það gæti alveg verið. En það er að mínu viti algjörlega fráleitt því þetta er náttúrulega ákvörðun tekin í nafni þessa embættis en ekki persónunnar sem tekur ákvörðunina, það er að segja ráðherra. Þetta er stjórnvaldsákvörðun sem verður ekki bara felld úr gildi því það er kominn nýr ráðherra,“ segir Helgi en ítrekar að hann viti ekki hver hugsunarháttur Sigríðar sé.

Mjög óþægilegt

Hann segir aðspurður að þessar deilur hafi tekið verulega á og að þetta hafi haft mjög leiðinleg áhrif á hann og fjölskyldu hans. Hann segir hótanir Kourani ekki hafa tekið meira á heldur en framganga Sigríðar.

„Að vera með hangandi yfir mér þessa óvissu um starfið sem maður er búinn að helga 26 árum af ævi sinni. Það að sitja undir þessu er bara mjög óþægilegt og hefur ekkert tekið minna á heldur en hótanir Kourani á sínum tíma,“ segir Helgi Magnús.

Kourani hef­ur tví­veg­is hlotið dóm fyr­ir hót­an­ir í garð Helga. Á tíu daga tíma­bili í janú­ar árið 2021 sendi hann Helga sex tölvu­pósta með líf­láts­hót­un­um í garð hans og í sum­um til­vik­um einnig fjöl­skyldu hans.

Svo þann 7. mars hótaði hann Helga ít­rekað líf­láti í af­greiðslu­rými rík­is­sak­sókn­ara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert