Landskjörstjórn skilar af sér eftir áramót

Landskjörstjórn við úthlutun þingsæta fyrr í mánuðinum. Kristín Edwald lengst …
Landskjörstjórn við úthlutun þingsæta fyrr í mánuðinum. Kristín Edwald lengst til hægri. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristín Edwald formaður landskjörstjórnar segir umsagnir um kærur og ágreiningsatkvæði í Suðvesturkjördæmi frá kosningunum 30. nóvember enn í vinnslu hjá landskjörstjórn, sem skili umsögn til Alþingis eftir áramót.

Eins og mbl.is hefur greint frá kærði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í Suðvest­ur­kjör­dæmi talningu at­kvæða í kjör­dæm­inu og synj­un­ yfir­kjör­stjórn­ar á end­urtaln­ingu at­kvæða. Tekið var fram í kærunni að að yfir­kjör­stjórn bæri að upp­lýsa kær­anda um fjölda utan­kjör­fund­ar­at­kvæða og skipt­ingu þeirra á milli fram­boða, en ekki hefði verið við beiðni um að fá þær upp­lýs­ing­ar.

Landskjörstjórn úthlutaði þingsætum til nýkjörinna þingmanna 10. desember sl. Þá tók við sjö daga kærufrestur, sem rann út 17. desember sl. Að honum loknum fór landskjörstjórn yfir framkomnar kærur og mun síðan skila Alþingi rökstuddri umsögn um þær.

Undirbúningsnefnd Alþingis fyrir rannsókn kosninga tekur síðan við þeim umsögnum og ferlinu og að því loknu kjörbréfanefnd.

„Endanleg staðfesting á kosningunni er þó í reynd ekki fyrr en á fyrsta þingfundi þegar kjörbréfanefnd skilar áliti sínu og tillögu sem þingheimur greiðir atkvæði um, segir á vef Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert