Veruleg fjölgun hefur orðið á RS-veirutilfellum hér á landi og er tíðnin mun hærri en síðasta vetur. Samhliða fjölgar tilfellum inflúensu og veldur þetta auknu álagi í heilbrigðisþjónustu. Er þetta í takt við það sem er að gerast í Evrópu, samkvæmt því sem fram kemur á vef embættis landlæknis.
Búast má við verulegri fjölgun tilfella næstu vikurnar auk Covid-19 tilfella, og gefur landlæknir út þau tilmæli að skerpa þurfi á sýkingavörnum. Þá er fólk hvatt til að láta bólusetja sig gegn inflúensu og með uppfærðu bóluefni gegn Covid-19.
Landspítalinn er nú þegar undir miklu álagi vegna RS-vírusfaraldursins, en ungbörn og eldra fólk eru í mestri hættu á að veikjast alvarlega.
30 einstaklingar lágu inni á Landspítalanum í síðustu viku með RS-vírus, þar af 11 ungbörn.