Nóttin var erilsöm hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Síðasta sólarhring var farið í 116 útköll á sjúkrabílum, næturvaktin fór í 42 þeirra.
„Hálkuslys, brjóstverkir, krampar, fólk að slást og slasa hvort annað, fæðingaflutningur, kviðverkir og svo margt annað var meðal þess sem við sinntum í nótt,“ segir í færslu slökkviliðsins á Facebook.
Dælubílar voru kallaðir út sex sinnum og í eitt skipti af öllum stöðvum, en þá var tilkynnt um eld í húsi.
Góðan dag 116 útköll á sjúkrabíla síðasta sólarhring og átti næturvaktin 42 þeirra. Sem sagt þá var nóttin erilsöm. ...
Posted by Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. on Mánudagur, 23. desember 2024