Hæstiréttur tekur búvörulögin fyrir

Hæstiréttur hefur tekið ákvörðun um að taka málið fyrir.
Hæstiréttur hefur tekið ákvörðun um að taka málið fyrir. Samsett mynd

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Innes og Samkeppniseftirlitsins sem fjallar um heimild eftirlitsins til að grípa inn í háttsemi framleiðendafélaga samkvæmt búvörulögum. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að lögin hefðu ekki lagagildi.

Þetta kemur fram í ákvörðun Hæstaréttar.

Í síðasta mánuði komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að búvörulögin sem voru samþykkt á Alþingi í mars hefðu ekki verið sett á stjórnskipulegan hátt. Ástæðan var sú að svo miklar breytingar höfðu verið gerðar á frumvarpinu við meðferð þess á Alþingi.

Samkvæmt 44. gr. stjórnarskrárinnar mega engin lög vera samþykkt nema þau hafi fengið þrjár umræður á Alþingi. Vegna þeirra breytinga sem urðu á frumvarpinu taldi héraðsdómur frumvarpið í raun bara hafa fengið eina umræðu á þingi.

Málið á rætur að rekja til þess að Innes krafðist þess að Samkeppniseftirlitið gripi til íhlutunar vegna háttsemi framleiðendafélaga. Eftirlitið hafnaði kröfunni og sagði eftirlitið félögin ekki lengur á valdsviði þess eftir að Alþingi samþykkti umrædd búvörulög. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert