Mistókst að ræna hraðbanka

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um eignaspjöll á hraðbanka í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Þegar upptökur voru skoðaðar kom í ljós að reynt hafði verið að ræna hraðbankann en án árangurs.

Kastaði skó í annan einstakling

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling sem var ógnandi í miðbæ Reykjavíkur. Hann var búinn að kasta skó í annan einstakling og var hugsanlega með hníf.

Lögreglan handtók manninn og flutti á lögreglustöð. Enginn hnífur reyndist vera á vettvangi en maðurinn var mjög æstur og mjög ölvaður. Hann var vistaður í fangaklefa vegna málsins.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Alls eru 42 mál skráð í kerfi lögreglu á tímabilinu.

Lögreglunni á Hverfisgötu barst tilkynning um „víðáttuölvaðan“ einstakling sem lá í blómabeði. Vegna ölvunarástands var hann vistaður í fangaklefa þangað til rennur af honum.

Tilkynnt um eld í heimahúsi

Tilkynning barst um eld í heimahúsi í Reykjavík. Í ljós kom að pottur á eldavél var að brenna yfir. Ekkert tjón varð og leystist málið vel.

Einnig var tilkynnt um innbrot í verslun. Ekki er vitað hvað var nákvæmlega tekið en þjófurinn þekktist á upptökum. Málið er í rannsókn.

Tók upp hníf á samkomustað

Lögreglunni á Vínlandsleið var tilkynnt um einstaklinga að rífast á samkomustað. Annar þeirra tók upp hníf og kallaði starfsfólk því á lögregluna.

Þegar lögreglan kom á staðinn voru allir orðnir rólegir. Sá sem var með hnífinn verður kærður fyrir brot á vopnalögum.

Eignaspjöll á sameign

Einn var vistaður í fangklefa eftir eignaspjöll í sameign í umdæmi lögreglunnar í Kópavogi og Breiðholti. Hann var mjög ölvaður og neitaði einnig að gefa upp nafn og kennitölu.

Tilkynnt var um umferðaróhapp þar sem ekið var utan í bifreið  í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ. Sá sem olli tjóninu lét sig aftur á móti hverfa af vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert