Slydduél eða skúrir sunnan- og vestantil

Spáð er éljagangi í dag.
Spáð er éljagangi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gul viðvörun verður í gildi á Miðhálendinu til hádegis í dag. Spáð er suðvestan 18 til 25 metrum á sekúndu og éljagangi með lélegu skyggni og slæmu ferðaveðri.

Veðurhorfur á landinu næsta sólahringinn eru þannig að spáð er suðvestan 10-18 m/s, hvassast við suðurströndina. Slydduél verða eða skúrir sunnan- og vestantil framan af morgni, síðan snjóél og kólnar í veðri, en úrkomulítið norðaustanlands.

Suðvestan 8-15 m/s og él verða eftir hádegi, en bjartviðri norðaustantil. Hiti verður í kringum frostmark. Snýst í norðan 10-15 m/s með snjókomu á Vestfjörðum í nótt og á Vesturlandi með morgninum. Norðlæg átt, 10-15 m/s með snjókomu eða éljum norðantil á morgun, en birtir til fyrir sunnan. Kólnandi veður.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert