Íslendingum allir vegir færir

Vegurinn um Súðarvíkurhlíð hefur verið opnaður.
Vegurinn um Súðarvíkurhlíð hefur verið opnaður. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

„Það eru allir vegir opnir og við búumst ekki við mikilli snjóflóðahættu í nótt,“ segir Erla Guðný Helgadóttir, snjóflóðasérfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Veginum um Súðarvíkurhlíð var lokað í gær vegna snjóflóðs og var þá einnig tekin ákvörðun um að loka Hnífsdalsvegi í gærkvöldi sökum snjóflóðahættu.

Í samtali við mbl.is segir Erla að það hafi dregið hratt úr snjóflóðahættu um leið og það hætti að hvessa í dag.

Engin flóð fallið síðan í morgun

Mikill skafrenningur var í gærkvöldi og féllu flóð í Súðavíkurhlíð og einnig á öðrum stöðum sem voru þó ekki upp við vegi í gærkvöldi og í nótt.

Engin flóð hafa þó fallið síðan í morgun.

„Vonandi verður bara rólegt í nótt. Það er pínu austanátt og örlítil snjókoma með því en ég býst ekki við því að það verði mikil snjóflóðahætta í því veðri og vonandi gengur það bara hratt yfir,“ segir Erla.

„Þetta eru búnir að vera nokkrir dagar núna yfir hátíðirnar og vonandi fáum við smá pásu yfir áramótin.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka