Ferjuðu fjölda fólks niður af heiðinni

Ferja þurfti fólk á öllum aldri niður af Vatnaleið í …
Ferja þurfti fólk á öllum aldri niður af Vatnaleið í dag auk tveggja vörubílstjóra. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitirnar Berserkir og Klakkur ferjuðu fólk niður af Vatnaleið á Snæfellsnesi síðdegis í dag.

Fólk á öllum aldri var ferjað í á öðrum tug bíla niður af heiðinni auk tveggja vörubílstjóra í kjölfar þess að vegurinn um Vatnaleið lokaðist vegna áreksturs nokkurra bíla.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu lauk aðgerðum um áttaleytið í kvöld.

Ljósmynd/Landsbjörg
Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert