Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir þremur mönnum sem grunaðir eru um stórfelld fíkniefnalagabrot. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn er til 20. janúar.
Eru þeir grunaðir um að hafa í fórum sínum um 2.943,38 grömm af MDMA í kristalsformi sem fundust við leit lögreglu í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi.
Samkvæmt matsgerð rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði var styrkur MDMA í sýnum úr efnunum á bilinu 80 - 81%, sem samsvarar 95 - 96% af MDMA-klóríði.
Þessu til viðbótar liggur fyrir að tveir mannanna hafi verið með í fórum sínum 1.781 töflu af MDMA sem fundust við leit í bifreið sem þeir notuðu þegar þeir voru handteknir.
Fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði að lögreglan hafi skipt efnunum út fyrir gerviefni og sett litarefni á umbúðir. Í framhaldi hafði lögregla eftirlit með húsnæðinu.
Síðar sama dag komu þrír menn í húsnæðið og sóttu gerviefnin en samkvæmt mynd- og hljóðupptöku lögreglu lítur út fyrir að það hafi verið mennirnir tveir ásamt þriðja meinta samverkamanninum. Fram kemur að tveir mannanna hafi verið með téð litarefni á höndunum við handtöku og þeir virðast því hafa farið höndum um umbúðirnar.
Jafnframt liggur fyrir að efnin voru í fórum tveggja manna þegar þeir voru handteknir stuttu eftir móttöku þeirra.
Mennirnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá 3. október.