Vindurinn helsta óvissan

Sjá mun til tungls og stjarna um áramót að sögn …
Sjá mun til tungls og stjarna um áramót að sögn Einars. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fínu veðri er spáð um áramótin og fyrirtaksveðri til að bregða sér af bæ. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið.

Það liggur fyrir að það verður kalt að sögn Einars, víða 5 til 10 stiga frost og jafnvel meira inn til landsins. Einnig verður bjart og sjá mun til tungls og stjarna um mestallt land. Einna helst verður eitthvað um él á Norðausturlandi, við ströndina frá Húsavík og austur á Vopnafjörð, en allt minniháttar, segir Einar.

Helsta óvissan er með vindinn. Hvort verði stafalogn eða einhver gola. Gera má ráð fyrir hægum vindi að mestu á landinu en að sums staðar nái að verða smágjóla. Á Suðausturlandi verði strekkingsvindur sem og með norðausturströndinni.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert