Ríkisstjórnin biður nú almenningi að senda inn tillögur um hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og sameiningu stofnana inn á samráðsgátt.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
„Almenningur, fyrirtæki og hagsmunaaðilar geta sent inn tillögur, hugmyndir og sjónarmið um hvernig hægt er að hagræða í rekstri ríkisins. Einnig verður kallað sérstaklega eftir upplýsingum og ábendingum frá ríkisstofnunum,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að senda inn tillögur í samráðsgátt til 23. janúar og fólk hvatt til að hafa tillögurnar skýrar.
Í kjölfarið mun starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins rýna allar ábendingar og niðurstöður vinnunnar verða nýttar við að móta áætlun til lengri tíma um umbætur í rekstri ríkisins.
Verkefnið ber heitið Verum hagsýn í rekstri ríkisins.
„Hvar og hvernig má hagræða í rekstri ríkisins? Myndum við verja opinberu fé í sömu verkefni og með sama hætti ef við værum að byrja frá grunni? Hvar mætti stokka upp eða breyta forgangsröðun? Eru dæmi um sóun hjá hinu opinbera sem auðvelt væri að taka á? Hvað myndir þú gera öðruvísi?“ segir inn á samráðsgátt.