Rannsókn lögreglu í tengslum við andlát konu á sjötugsaldri í Breiðholti í október á síðasta ári er á lokametrunum og er reiknað með að málið verði sent til héraðssaksóknara á næstu dögum.
Þetta segir Eiríkur Valberg, fulltrúi í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Karlmaður sem er grunaður um að hafa verið valdur að dauða konunnar og er sonur hennar er í gæsluvarðhaldi sem rennur út 15. janúar en þá hefur hann setið í gæsluvarðhaldi í 12 vikur. Enginn getur setið lengur í gæsluvarðhaldi en tólf vikur ef ekki er gefin út ákæra. Undantekning er þó ef brýnir rannsóknarhagsmunir eru til staðar.
Lögregla fékk tilkynningu um málið um miðnætti 23. október. Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti voru strax hafnar endurlífgunartilraunir. Þær báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin.
Sonur konunnar var í kjölfarið handtekinn en hann nýsloppinn úr fangelsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir ofbeldi gegn móður sinni. Þá var hann ákærður árið 2006 fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið föður sinn í bakið.
Hann var metinn ósakhæfur og fram kom í Héraðsdómi Reykjavíkur að á verknaðastundu hafi hann verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum. Honum var gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.