Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins mun halda vinnufund á morgun í forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum.
Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, í samtali við mbl.is.
Hún segir að gert sé ráð fyrir því að fundurinn standi yfir í heilan vinnudag en nefndi ekki hvaða mál yrðu á dagskrá.
Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði í samtali við Vísi að hann myndi leggja áherslu á Sundabraut.